top of page
Um Okkur
Marmik Hárgreiðslustofa byggir þjónustu sína á áratugareynslu starfsmanna hennar og þekkingu á sviði hárgreiðslu og hárumhirðu. Við erum dugleg að fylgjast með nýjustu straumum í tískuheiminum og aðlagast þeim straumum sem eru í gangi hverju sinni. Fyrirtækið er staðsett í Rangárseli 2 sem er í seljahverfinu. Hjá fyrirtækinu starfa hárgreiðslumeistarinn hún Kristín Egilsdóttir sem er eigandi ásamt hárgreiðslusveinunum Stellu Rut og Katrínu. Einnig er í boði keratín meðferðir en það er hún Krystina sem hefur réttindi til þess. Fyrirtækið Marmik er fjölskyldufyrirtæki sem rekur einnig öfluga heildsölu á sviði lífstílsvara og hefur sérhæft sig töluvert í sérvörum fyrir hárumhirðu. Sjá nánar hér Marmik Heildsala
bottom of page